Tubolito
Tubolito Tubo Road SYNCD SV60 slanga
Tubolito Tubo Road SYNCD SV60 slanga
Verð
5.390 ISK
Verð
Tilboð
5.390 ISK
Einingarverð
/
fyrir
Gat ekki hlaðað inn afhendingarmöguleika
Fyrsta snjallslanga heimsins og nýjasta tækni Tubolito. SYNCD er með innbyggðan Bluetooth skynjara sem sendir loftþrýsting og hita í rauntíma beint í símann eða hjólatölvuna á meðan þú hjólar.
Þú stillir efri og neðri mörk fyrir þrýsting og færð viðvörun um leið og dekkið fer út fyrir þau. Byrji dekkið að leka færðu tilkynningu strax í stað þess að taka eftir því of seint.
Virkar með Tubolito appinu fyrir iOS og Android, og með Garmin hjólatölvum í gegnum Connect IQ. Rafhlaðan endist í allt að tvö ár eða um 10.000 km. Hún er innsigluð inni í slöngunni og því ekki hlaðanleg.
- Þyngd: 45 g
- Passar: 700 x 23C til 700 x 35C (ETRTO 23-622 til 35-622)
- Ventill: 60 mm Presta, svartur
- Skynjari: Bluetooth, þrýstingur og hiti í rauntíma
- Tengist: iOS, Android og Garmin (Connect IQ)
- Rafhlaða: Allt að 2 ár eða 10.000 km, ekki skiptanleg
- Efni: TPU
Deila vöru
