: Carpe rafmagnsborgarhjól

Carpe er létt og skemmtilegt rafmagnsborgarhjól hannað til að rúlla hratt eftir hjólastígum borgarinnar. Hjólið kemur útbúið 85 NM kraftmiklum Shimano mótor og 420 WH innbyggðu batteríi. Það kemur einnig með innbyggðum ljósum til að gera þig sýnilegan í íslenska vetrarmyrkrinu og er fáanlegt með ljóskastara að framan. Carpe er hannað til að taka lítið pláss þegar það er í geymslu, en það fáanlegt með pedölum sem er hægt að fella að hjólinu og stýri sem er hægt að snúa auðveldlega upp á. Hjólið kemur með allskonar aukahlutum eins og bögglabera, símafestingu, USB-C hleðsluporti og standara, en svo er hægt að fá hjólið í mismunandi útgáfum með eða án bretta, bögglabera að framan, belti, sjálfskiptingu, skjá, innbyggðan lás, og auka utanáliggjandi batterí svo eitthvað sé nefnt.

Létt og skemmtilegt rafhjól

Carpe er létt og skemmtilegt rafmagnsborgarhjól hannað til að bruna hratt eftir hjólastígum borgarinnar.

Hannað til að taka lítið pláss

Carpe hjólið er fáanlegt með stýri sem er hægt að snúa upp á til að það taki sem minnst pláss í geymslu, það er einnig fáanlegt með pedölum sem er hægt að fella saman.

85 NM Shimano mótor og 420 WH batterí

Hjólið kemur útbúið 85 NM kraftmiklum Shimano mótor og 420 WH innbyggðu batteríi sem að gefur þér góða hröðun og góða drægni í léttum pakka.

Öryggi í fyrirrúmi

Carpe er hannað með öryggi í huga, innbyggð ljós gera þig sýnilega úr öllum áttum, hjólið er fáanlegt með ljóskastara að framan til að sjá vel í myrkri og svo kemur hjólið útbúið leynihólfi fyrir airtag, og er fáanlegt með innbyggðum lás á stellinu til að þú getir gengið frá hjólinu án þess að hafa áhyggjur af því.

Allskonar aukahlutir í boði

Hjólið er fáanlegt í allskonar útgáfum með allskoanr aukahlutum svo að það uppfylli allar þínar þarfir.

Snjöll hönnun eykur þægindi

Carpe hjólið kemur útbúið carbon gaffli og stellið er hannað til að beygjast smá með það í huga að draga úr víbringi og auka þægindi án þess að hafa dempara sem þarf að viðhalda á hjólinu.

Snjallar lausnir fyrir lítið pláss

Carpe hjólið er fáanlegt með stýri og pedölum sem hægt er að snúa og fella saman þegar það er í geymslu. Hentar mjög vel þegar það er lítið pláss til staðar.

Vertu sýnileg/ur

Hjólið er hannað til að gera þig sýnilega/n úr öllum áttum. Innbyggt ljós að framan gerir þig sýnilega/n að framan og frá hliðunum. Innbyggt ljós í sætispípunni tryggir að þú sért sýnileg/ur að aftan. Hjólið er fáanlegt með eða án ljóskastara að framan fyrir þau sem að vilja sjá vel í vetrarmyrkrinu.

Innbyggt batterí

Innbyggt batterí sem er vel varið frá þjófnaði, falli og slæmu íslensku vetrarveðri.

Falið innbyggt geymsluhólf fyrir airtag

Hjólið kemur með földu geymsluhólfi fyrir airtag svo að þú getir fylgst með hvar það er staðsett þegar þú ferð frá hjólinu eða til að finna það ef því er stolið.

Fáanlegt með innbyggðum lás

Hjólið er fáanlegt með innbyggðum ABUS lási svo að þú getir læst hjólinu þínu með auðveldum og fljótum hætti.

Auka utanáliggjandi batterí

Hægt er að panta hjólið með auka 252 WH utanáliggjandi batteríi sem þú smellir á stellið eins og brúsa fyrir aukna drægni.

Festipunktar fyrir aukahluti

Hjólið kemur með tveimur festipunktum þar sem þú getur meðal annars valið að hafa lás, brúsa, auka utanáliggjandi batterí svo eitthvað sé nefnt

Símafesting og USB-C hleðsla

Hjólið kemur með innbyggðri SP-Connect símafestingu og USB-C hleðsluporti svo að þú getir hlaðið símann þinn á ferð.

Belti og sjálfskipting í boði

Carpe 10 kemur með viðhaldslitlu belti og sjálfskiptingu fyrir þau sem vilja það allra besta. Hin Carpe hjólin koma með hefðbundri keðju og afturskipti.

Bretti tilbúið fyrir bleytuna

Sumar Carpe týpurnar koma útbúnar flottum brettum sem hjálpa þér að halda þér þurrum og hreinum í blautum aðstæðum.

Innbyggður standari

Carpe hjólin eru fáanleg með innbyggðum standara sem er auðvelt að stilla til eftir aðstæðum.

Bögglaberi 20 kg

Hjólið kemur með MIK bögglabera sem tekur allt að 20 kg. MIK kerfið býður upp á að festa mikinn fjölda af aukahlutum við bögglaberann með fljótlegum hætti t.d. flotta hliðartösku

Bögglaberi 30 kg

Hægt er að fá hjólið með bögglabera sem að tekur allt að 30 kg, fullkomið fyrir þau sem vilja vera með barnastól eða flytja þyngri hluti með hjólinu. MIK kerfið býður upp á að festa mikinn fjölda af aukahlutum við bögglaberann með fljótlegum hætti t.d. barnasæti, körfu, kassa, eða hliðartösku

Bögglaberi að framan

Hægt er að panta hjólið með bögglabera að framan sem tekur allt að 10 kg fyrir þau sem vilja enn meiri burðargetu

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is