: Terra malarhjól forpöntun
Malarhjól sem getur allt, hvort sem þú ert að fara í skemmtilegan hjólatúr um heiðmörk, á leið í Rift keppnina, eða á leið í bikepacking ferð, að þá er Terra hjólið fyrir þig. Hjólið tekur allt að 50 mm breið dekk, og 45 mm breið ef þú ert að nota bretti á sama tíma. Hjólið kemur með stóru geymsluhólfi svo þú þurfir ekki að vera með of mikið af hlutum í treyju vösunum þínum. Hjólið kemur með mörgum festipunktum fyrir allskonar hluti eins og bretti, brúsa, töskur og fleira. Að lokum er hjólið fáanlegt með 1x eða 2x drifbúnaði og styður dropper sætispípur.
-
Tilboð ForpöntunTERRA H50 2027
Verð 274,532 ISKVerðEiningarverð / fyrir289,900 ISKTilboð 274,532 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA H40 2027
Verð 286,860 ISKVerðEiningarverð / fyrir299,900 ISKTilboð 286,860 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA H40 1X 2027
Verð 286,860 ISKVerðEiningarverð / fyrir299,900 ISKTilboð 286,860 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA H30 2027
Verð 311,516 ISKVerðEiningarverð / fyrir329,900 ISKTilboð 311,516 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA H30 1X 2027
Verð 311,516 ISKVerðEiningarverð / fyrir329,900 ISKTilboð 311,516 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA M30TEAM 2027
Verð 434,796 ISKVerðEiningarverð / fyrir469,900 ISKTilboð 434,796 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA M30TEAM 1X 2027
Verð 434,796 ISKVerðEiningarverð / fyrir469,900 ISKTilboð 434,796 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA M20TEAM 2027
Verð 504,203 ISKVerðEiningarverð / fyrir569,900 ISKTilboð 504,203 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA M35TEAM 2027
Verð 544,272 ISKVerðEiningarverð / fyrir619,900 ISKTilboð 544,272 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA M31eTEAM 1X 2027
Verð 570,612 ISKVerðEiningarverð / fyrir649,900 ISKTilboð 570,612 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA M20iTEAM 2027
Verð 772,552 ISKVerðEiningarverð / fyrir879,900 ISKTilboð 772,552 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA M21eTEAM 1X 2027
Verð 798,892 ISKVerðEiningarverð / fyrir909,900 ISKTilboð 798,892 ISKTilboð -
Tilboð ForpöntunTERRA M22TEAM 1X 2027
Verð 798,892 ISKVerðEiningarverð / fyrir909,900 ISKTilboð 798,892 ISKTilboð
Veldu að vera frjáls!
Frjáls frá malbikinu, rúllandi eftir malarvegum og slóðum, að njóta náttúrunnar í leiðinni.
Stilltu hjólið að þínum þörfum
Þú getur valið breiðara eða grennra stýri, lengri eða styttri stamma og lengdir af sveifum sem að henta þínum þörfum í pöntunarferlinu.
Veldu stýri eftir þínum þörfum
Þú getur valið á milli stýris sem að lágmarkar loftmótstöðuna og er með kaplana fallega þrædda í gegnum stýrið eða útvítt stýri fyrir aukna stjórn á hjólinu.
Festipunktar
Terra hjólið kemur með þó nokkrum festipunktum á stellinu fyrir allskonar aukahluti, hvort sem þú vilt festa töskur fyrir langferðalög eða auka brúsa.
Festingar fyrir bretti
Öll Terra hjólin koma með festipunktum fyrir bretti, að framan og að aftan. Hægt er að panta bretti aukalega með hjólinu.
Lockr XXL
Stellið kemur með innbyggðu stóru geymsluhólfi til að geyma allskonar, hvort sem það er auka föt, verkfæri eða mat.
Gjarðir
Þrjár mismunandi OQUO malar gjarðir eru í boði fyrir Terra hjólin.
OQUO RP50LTD
50 mm djúpar carbon gjarðir sem að lágmarka loftmótstöðu, og eru sérstaklega hannaðar fyrir malarkeppnir. Þetta eru gjarðir fyrir þá allra kröfuhörðustu.
OQUO RC30TEAM
Flottar 30 mm djúpar carbon gjarðir sem að henta vel í malarhjólreiðar og lengri vegalengdir.
OQUO RC25PRO
Vel byggðar og þægilegar ál gjarðir sem að henta öllu undirlagi.
Hannað til að draga úr víbringi
Stellið er hannað til að vera styttra þar sem að sætispípan fer niður og hjólið kemur með aðeins lengri sætispípu, þetta lætur sætispípuna sveigja örlítið sem að dregur úr víbringi og skilar sér í meiri þægindi á mölinni.
Hjólið tekur allt að 50 mm breið dekk
Hjólið er hannað til að taka allt að 50 mm breið dekk sem er fullkomið fyrir grófu íslensku malarvegina. Ef þú notar bretti þá tekur hjólið 45 mm breið dekk þegar brettin eru í notkun.
MyO
Carbon Terra týpurnar bjóða upp á MyO (My Orbea). Hannaðu draumahjólið þitt í þínum litum þér að kostnaðarlausu!
Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!
ofsi@ofsi.is