Skilmálar

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Ofsi hjól ehf, kt. 440716-0830, vsk númer. Fyrirtækið sérhæfir sig í smásölu á íþrótta-, útivistar- og tómstundabúnaði.

Verð

Vinsamlegast athugið að öll verð, birgðarstaða, litir, stærðir og aukahlutir birtast með fyrirvara um innsláttarvillur og geta því breyst. Ofsi hjól áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga. Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og með VSK. Haft er samband við kaupanda ef tiltekin vara er ekki til og stendur þá til boða sambærileg vara eða endurgreiðsla. Aukahlutir sem pantaðir eru með reiðhjólum koma ásettir á hjólið kaupanda að kostnaðarlausu.

Hægt er að greiða með kreditkortum frá Visa og Mastercard. Einnig er hægt að staðgreiða með debetkorti eða millifærslu beint inn á reikning okkar. Ofsi hjól notar greiðslugátt frá Valitor á Íslandi. Þegar greiðsla hefur borist fær viðskiptavinur tölvupóst með staðfestingu á pöntun.

Kt: 440716-0830
Reikn: 0133-26-013350
Vinsamlegast setjið pöntunarnúmer með í skýringu.

Afgreiðslutími

Afgreiðslufrestur lagervöru er 1-4 sólarhringar frá því að pöntun er gerð. Í því felst til dæmis samsetning á hjóli og afhending vöru heim að dyrum. 

Pantanir á hjólum eru mismunandi á covid tímum. Kúnni er upplýstur um áætlaðann afhendingartíma við pöntun og reynum við eftir fremsta megni að halda honum upplýstum ef breytingar verða á afhendingartíma.

Ábyrgð

Full framleiðsluábyrgð er vegna galla á efni og vinnu á framleiddum Orbea vörum í tvö ár. Umfram það fylgir lífstíðarábyrgð af Orbea stellum og göfflum sem fylgja hjólinu. Ábyrgð gildir einungis fyrir upphaflegann kaupanda vörunnar. Það er á ábyrgð kúnna að skrá serial númer hjóls innan 30 dögum frá afhendingu. 

Ef vara telst gölluð mun Ofsi hjól sækja ábyrgðina út og laga eða skipta út viðkomandi vöru. Athugið að ábyrgð nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, þvotti, vanrækslu, venjulegu sliti eða litatapi sem verður við notkun og eða sökum aldurs vörunnar.

Persónuvernd

Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem trúnaðarmál og þær eingöngu nýttar til að klára viðskipti. Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.

Neytendalög

Viðskiptavinur getur hætt við kaup á vörunni frá því pöntun er gerð og getur auk þess skilað henni innan 14 daga frá því að varan er afhent. Einungis er tekið við skilavöru ef varan er ónotuð og með öllum merkjum. Varan er endurgreidd innan 30 daga eftir að henni er skilað. Endursending vöru utan af landi er á ábyrgð og kostnað viðskiptavinar nema ef um gallaða vöru er að ræða.

Samkvæmt verklagsreglum neytendastofu fellur skilaréttur úr gildi ef vara hefur verið sérstaklega sniðin að þörfum kaupanda. Samanber forpöntun, MyO pöntun eða uppfærslu á sérstökum aukahlutum.

Ef afhending vörunnar tekst ekki vegna atvika sem varða kaupanda þá mun seljandi geyma vöruna á lager í 2 vikur frá því að reynt var að afhenda vöruna í byrjun. Að tveimur viknum liðnum hefur seljandi heimild til að rifta samningnum án frekari fyrirvara og endurgreiða kaupanda kaupverðið.

Um kaup vara í gegnum www.ofsi.is gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 sem og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, eftir því sem við getur átt. Niðurtalning á öllum frestum sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefst þegar móttaka vöru á sér stað.

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð hefur verið greitt að fullu. Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin.

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Skilmálar þessir gilda frá 20. maí 2011.

Hafir þú fleiri spurningar, ekki hika við að hafa samband.

Upplýsingar um seljanda:

Ofsi Hjól ehf.
440716-0830
Brekkugata 7
210 Garðabær
s: 853-8693
ofsi@ofsi.is
VSK-númer: 124992