: Kimu barnahjól forpöntun

Kimu eru vönduð barnahjól frá Orbea, fyrir 2 til 12 ára. Hjólin eru létt og hönnuð frá grunni fyrir krakka, frá jafnvægishjóli með 12" gjörðum og upp í alvöru fjallahjól með 27,5" gjörðum, loftdempara og dropper sætispípu. Fullkomin hjól fyrir krakka sem vilja læra að hjóla og hafa gaman af því.

Hjól sem vex með barninu

Kimu eru barnahjólin frá Orbea, frá fyrsta jafnvægishjólinu og upp í alvöru fjallahjól. Hjólin eru létt, hönnuð frá grunni fyrir krakka og smíðuð eftir sömu kröfum og fullorðinshjólin frá Orbea.

Aldur

2 - 12 ára

Hæð

80 - 149 cm

Gjarðir

12" - 27,5"

Stærðir

5

Kimu 12

2 - 4 ára  |  80 - 100 cm

Jafnvægishjól fyrir þau allra yngstu. Stellið er lágt, svo að það er auðvelt að setjast á hjólið og setja fæturna niður.

Kimu 16

3 - 6 ára  |  94 - 115 cm

Byrjar sem jafnvægishjól og breytist í hjól með pedölum þegar barnið er tilbúið. Kemur með vökvadiskabremsum.

Kimu 20

5 - 8 ára  |  108 - 128 cm

Fyrsta hjólið með gírum. 20" gjarðir, 8 gírar og vökvadiskabremsur gera hvern túr léttan og skemmtilegan.

Kimu 24

7 - 10 ára  |  121 - 138 cm

Kemur í þremur útgáfum eftir getu og hjólastíl. Fáanlegt með 100 mm loftdempara að framan og dropper sætispípu.

Kimu 27

9 - 12 ára  |  135 - 149 cm

Fjallahjól á 27,5" gjörðum með 110 mm loftdempara að framan. Kemur í tveimur útgáfum, með 10 eða 12 gírum. Fáanlegt með dropper sætispípu.

Fyrsta hjólið - KIMU 12 og 16

Kimu 12 og Kimu 16 eru fyrir þau yngstu. Hjólin eru lág, létt og stöðug og allt er í stærð sem passar litlum hjólurum. Barnið hefur stjórn á hjólinu og öðlast sjálfstraust frá fyrsta degi.

Stöðugra
stýri

Gúmmí við gaffalinn heldur aftur af snöggum og kröppum beygjum. Barnið dettur síður og lærir að stýra á eðlilegan hátt.

Léttar
bremsur

Kimu 16 er með vökvadiskabremsum og stuttum bremsuhandföngum sem litlar hendur ná utan um. Það þarf lítið afl til að bremsa.

Lokuð
keðjuhlíf

Keðjan á Kimu 16 er alveg lokuð inni í léttri hlíf. Hún ver keðjuna fyrir óhreinindum og heldur fötum og litlum fingrum frá.

Úr jafnvægishjóli í pedalahjól

Kimu 16 byrjar sem jafnvægishjól. Þegar barnið er farið að renna sér og bremsa af öryggi er pedölunum bætt við, og barnið lærir að hjóla án hjálpardekkja. Með hjólinu fylgir líka önnur, lengri sætispípa svo að það passi barninu lengur.

Alvöru fjallahjól - KIMU 20, 24 og 27

Kimu 20, 24 og 27 eru fyrir krakka sem eru komin lengra. Létt álstell, stórar gjarðir og geometría í réttum hlutföllum gefa hjól sem er stöðugt, auðvelt að ráða við og tilbúið á slóðana.

Stórar
gjarðir

Gjarðirnar eru hlutfallslega stórar, líkt og 29" gjarðir á fullorðinshjóli. Hjólið heldur hraðanum betur og rúllar léttar yfir ójöfnur.

Carbon gaffall
og sætispípa

Kimu 20 og 24 eru fáanleg með gaffli og sætispípu úr carbon. Það léttir hjólið og dregur úr titringi frá slóðanum.

Loftdempari
að framan

Kimu 24 er fáanlegt með 100 mm loftdempara að framan og Kimu 27 kemur með 110 mm. Hann gefur meira grip og þægindi þegar slóðarnir verða grófari.

Stammi sem lengist

Stamminn á Kimu 20, 24 og 27 lengist úr 40 í 55 mm með millistykki sem er einfalt að setja í. Þannig passar hjólið barninu lengur.

Dropper fyrir krakka

Venjuleg dropper sætispípa þarf meiri þyngd en krakkar hafa. Dropperinn sem fæst á Kimu 24 og 27 er með lægri þrýstingi, og hægt er að lengja hann um 25 mm þegar barnið stækkar.

Gert til að endast

Kimu þolir hnjaskið sem fylgir því að vera krakki. Hjólið er sterkbyggt og búnaðurinn traustur, svo að það getur gengið áfram til næsta barns þegar það fyrra er vaxið upp úr því.

Nafnið
á stellið

Á stellinu er nafnplata þar sem barnið getur merkt sér hjólið og gert það að sínu.

Tvö sett
af hlífum

Skrautlegar hlífar verja stellið fyrir rispum. Annað settið er komið á hjólið og hitt fylgir með til skiptanna.

Límmiðar
í stíl

Með hjólinu fylgja litríkir límmiðar í stíl. Barnið skreytir hjólið eftir eigin höfði og ver stellið í leiðinni.

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is