: Orca Aero götuhjól forpöntun

Carbon götuhjól sem er hannað til að vera stíft og að lágmarka loftmótstöðu. Það kemur útbúið samsettu stýri og stýrisenda og er fáanlegt með djúpum OQUA gjörðum. Hjólið er hannað til að hafa lágan þyngdarpunkt fyrir aukinn stöðugleika, það tekur allt að 37 mm breið dekk fyrir þau sem vilja breið götuhjóladekk, og kemur með geymsluhólfi til að geyma verkfærin þín. Einnig er hægt að sérhanna alla liti á hjólinu þér að kostnaðarlausu. Þetta er draumahjól fyrir þau sem elska að fara hratt!

Fyrir þau sem vilja fara hratt!

Orca Aero er hannað fyrir hraða og skilvirkni. Það er fátt skemmtilegra en að finna fyrir hröðuninni sem að gott stíft Aero hjól gefur þér þegar þú setur aflið í pedalana.

Minni loftmótstaða

Orbea er búið að eyða þúsundir klukkustunda í að prufa mismunandi hannanir af nýja Aero hjólinu, til að þú getir notið þess að fara enn hraðar!

Carbon stýri

Hjólið kemur útbúið OC RA10 Carbon stýri með innbyggðum stýrisenda fyrir aukinn stífleika, og til að lágmarka loftmótstöðuna enn frekar. Allir kaplar eru þræddir snyrtilega í gegnum stýrið, sem ýtir undir flotta heildarmynd á hjólinu.

Lágur þyngdarpunktur

Orca Aero hjólið er leiðandi í götuhjólum með lágan þyngdarpunkt sem skilar sér í meiri stöðugleika

Pláss fyrir allt að 37 mm breið dekk

Hjólið virkar best með dekkjum á bilinu 29 - 35 mm breið dekk, en tekur allt að 37 mm breið dekk.

Innbyggð sætisklemma

Hjólið kemur útbúið innbyggðri sætisklemmu, til að lágmarka loftmótstöðu

Verkfærataska

Hjólið kemur útbúið geymsluboxi sem kemur með svona fínni verkfæra tösku til að geyma mikilvægustu varahlutina. Lítið mál að hafa hjólið með eða án geymsluboxinu.

Djúpar OQUO gjarðir í boði

Hægt er að panta hjólið með allt að 57 mm djúpum carbon gjörðum fyrir þau sem vilja það allra flottasta sem er í boði.

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is