
80 mm fjöðrun
Kemen Tour hjólin koma með 80 mm fjöðrun að framan sem er fullkomið fyrir borgarhjólreiðar

Bretti
Hjólið kemur með snyrtilegum brettum

MIK Bögglaberi fyrir 20kg
Hjólið kemur með MIK bögglabera sem tekur allt að 20 kg, en einnig er hægt að uppfæra í bögglabera sem tekur allt að 30 kg (tilvalið fyrir barnastól). MIK kerfið býður upp á að festa mikinn fjölda af aukahlutum við bögglaberann með fljótlegum hætti t.d. hliðartöskur eða barnastól

Símafesting og USB-C
Hjólið kemur með símafestingu fyrir SP Connect og Quadlock símahulstur, sem er hentugt ef þú vilt nota símann þinn til að sjá hraða og leiðina sem þú ert að fara. Einnig er USB-C hleðsluport til að geta hlaðið símann þinn á ferð

Standari
Innbyggður standari kemur með hjólinu

Bögglaberi að framan
Hægt er að panta hjólið með bögglabera að framan sem tekur allt að 10 kg fyrir þau sem vilja enn meiri burðargetu

Fjöðrun í sætinu
Hjólið er fáanlegt með fjöðrun í sætispípunni til að hámarka þægindin

Dropper sætispípa
Hjólið er fáanlegt með dropper sætispípu sem er frábær þegar maður fer niður krefjandi brekkur, en einnig mjög þæginleg til að komast upp á full lestað hjól og til að deila hjólinu með öðrum

Festingar fyrir hringlás
Hjólið kemur með festipunktum fyrir hringlás fyrir þau sem vilja hafa lás fastan við hjólið og geta læst hjólinu hratt og auðveldlega

Stöðuljós
Hjólið kemur með innbyggðu stöðuljósi í stellinu sem gerir þig sýnilegan frá hliðunum

Ljóskastari að framan
Hjólið kemur með innbyggðum ljós kastara í stýrinu, hægt er að uppfæra hann í enn kröftugra ljós og hafa þá valmöguleika á milli há og lág stillingu

Afturljós
Hjólið kemur með innbyggðu afturljósi á brettinu, sem verður skærara eftir því sem þú bremsar til að láta aðra vita að þú sért að hægja á þér