: Wild TR fulldempað rafmagnsfjallahjól forpöntun

Kraftmikið fulldempað trail rafmagnsfjallahjól sem kemur með 120 NM kraftmiklum Bosch CX mótor og 750WH eða 600WH batteríi eftir því hvort þú vilt léttara hjól eða stærra batterí. Hjólið kemur með 150 mm fjöðrun að framan og að aftan. Það kemur útbúið 29" gjörðum og hægt er að fá carbon útgáfuna með flottum innbyggðum skjá í stellinu. Þetta er draumahjól fyrir þau sem vilja kraftmikið rafmagnsfjallahjól og elska að bruna eftir skemmtilegum fjallahjólaslóðum.

Hannað fyrir slóðana

Wild TR er hannað til að hafa lágan þyngdarpunkt og langt á milli gjarðanna, með öryggi og stöðugleika að leiðarljósi.

Kraftmikill Bosch Gen 5 mótor

Wild TR kemur útbúið 120 NM kraftmiklum Bosch Gen 5 mótor, og hægt er að velja á milli 600 WH eða 750 WH batterí.

150 mm fjöðrun

Wild TR kemur með 150 mm fjöðrun að framan og að aftan sem er fullkomið fyrir slóðana.

Auðvelt að standa yfir hjólinu

Wild TR er hannað til að það sé auðvelt að standa yfir hjólinu, það ásamt því að bjóða upp á djúpar dropper sætispípur þýðir að það er auðvelt að velja á milli fleiri stell stærða eftir því hvort þú fýlar hjól í stærri eða minni kantinum.

Carbon stell

Flott OMR carbon stell í boði fyrir þau sem vilja það allra flottasta. Carbon hjólin eru léttari og stífari á réttu stöðunum til að aflið skili sér sem best.

Ál stell

Flott ál stell þar sem að suðan er slípuð niður til að það líti sem allra best út.

600Wh Batterí (1,3 kg léttara en 750WH)

750Wh Batterí

250Wh utanáliggjandi batterí í boði

MyO

Ákveðnar týpur af carbon hjólunum bjóða þér upp á að sérhanna litina á hjólinu þér að kostnaðarlausu!

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is