: Wild fulldempað rafmagnsfjallahjól

Valið rafmagnsfjallahjól ársins 2023 og 2024 af nokkrum þekktum hjólamiðlum eins og Bikeradar, E-Mountainbike Magazine, og The Loam Wolf. Kraftmikið fulldempað enduro rafmagnsfjallahjól sem kemur með Bosch CX mótor og 750WH eða 600WH batteríi eftir því hvort þú vilt léttara hjól eða stærra batterí. Hjólið kemur með 170 mm fjöðrun að framan og að aftan. Einnig er hægt að panta hjólið í mullet útgáfu fyrir þau sem hjóla í krefjandi aðstæðum. Þetta er draumahjól fyrir þau sem vilja kraftmikið rafmagnsfjallahjól og elska að bruna niður fjallshlíðir.

Hannað fyrir krefjandi aðstæður

Hjólið kemur með 170 mm fjöðrun að framan og að aftan, og er tilbúið í krefjandi aðstæður

Kraftmikið og góð ending á batteríi

Veldu á milli 600Wh eða 750Wh batterí sem kemur með nýjasta Bosch mótornum

Stílhrein og snyrtileg hönnun

Hjólið er virkilega fallega hannað, kaplar þræddir snyrtilega í gegnum stýrið og einfaldleiki í fyrirrúmi svo þú getir fókusað á að fara hratt!

Tilbúið í fjörið

Wild hjólið er eitt af léttari kraftmiklum rafmagnsfjallahjólum á markaðnum, en er þrátt fyrir það sterkbyggt hjól sem er tilbúið í fjörið

Djúpar sætispípur

Stellið er hannað til að taka mjög djúpar sætispípur, 210 mm fyrir S og M, en allt að 240 mm fyrir L og XL hjól, svo að hnakkurinn sé ekki fyrir á leiðinni niður brekkurnar.

Nútíma hönnun á stelli

Efri partur stellsins (top tube) er lágur svo auðveldara sé að standa yfir hjólinu, það ásamt djúpri dropper sætispípu, gerir þér kleift að velja á milli fleirri stærða á stelli, minna stell ef þú vilt fjörugra og liprara hjól en stærra stell ef þú vilt meiri stöðugleika. Það sem gerir hjólið einstaklega stöðugt í erfiðum aðstæðum er lágur þyngdarpunktur, 63,5° head angle og aukin lengd á milli gjarða.

OMR carbon stell

OMR carbon stell er fyrir þau sem vilja léttara hjól og möguleika á því að sérhanna liti á hjólinu

Ál stell

Ál stellið er fyrir þau sem vilja hjól á betra verði og vilja vandað ál stell þar sem að suðan er slípuð niður til að gefa hjólinu carbon útlit

Mullet 27,5"

Veldu Mullet, 29" gjörð að framan og 27,5" gjörð að aftan ef þú vilt meiri stöðugleika í erfiðum aðstæðum

29"

Veldu 29" gjarðir að framan og að aftan ef þú vilt fókusa á að rúlla hratt

Batterí

Veldu á milli 600 Wh eða 750 Wh batterí eftir því hvort þú vilt léttara hjól eða lengri endingu. Einnig er hægt að panta hjólið með auka 250 Wh utanáliggjandi batterí fyrir lengri hjólatúra.

750Wh Batterí

600Wh Batterí

250Wh utanáliggjandi batterí

Eitt mest verðlaunaða rafmagnsfjallahjólið á markaðnum!

MyO

Carbon útgáfan af hjólinu býður þér upp á að hanna draumahjólið þitt í þínum litum þér að kostnaðarlausu!

Wild ST

Það eru ekki allir sem eru að bruna niður fjöll og þurfa 170 mm fjöðrun. Wild ST útgáfan deilir mikið af eiginleikum Wild hjólsins en kemur í Trail útgáfu með 150 mm fjöðrun að framan og að aftan, og kemur á betra verði

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is