: Onna fjallahjól forpöntun

Skemmtilegt hardtail fjallahjól með álstelli sem kemur með 100 mm fjöðrun að framan og vökvadiskabremsum. Hjólið kemur með 27,5" eða 29" gjörðum eftir stærð og er með festingum fyrir bögglabera og standara. Fullkomið fyrsta fjallahjól fyrir þau sem vilja byrja að hjóla á slóðum og nota hjólið líka til að komast á milli staða.

Fann engar vörur
Notaðu færri flokka eða clear all

Hér byrjar þetta

Fyrsta fjallahjólið er upphafið að áhugamáli sem endist alla ævi. Rétta hjólið fylgir þér í ný ævintýri og setur túrunum þínum engin mörk.

Framdempari

100 mm

Gjarðir

27,5" / 29"

Stærðir

XS - XL

Stell

Ál

Þægindi og stjórn

Onna er hannað fyrir þau sem eru að læra að elska fjallahjólreiðar. Geometrían gefur þér góða stjórn á hjólinu og nýtir kraftinn þinn vel.

Gott jafnvægi

Geometrían er í góðu jafnvægi og stærð gjarðanna fylgir stærð stellsins, svo að hjólið passi öllum og sé skemmtilegt á slóðunum.

Tilbúið á slóðana

Öll Onna hjólin koma með 100 mm framdempara og vökvadiskabremsum, og Onna 40 og 20 koma með 1x Shimano CUES gírum. Svo er nóg pláss fyrir breið fjallahjóladekk sem gefa grip og þægindi.

Sterkt og snyrtilegt

Stellið á Onna er sterkast þar sem mest reynir á og kaplarnir liggja inni í stellinu. Þú færð traust hjól sem lítur vel út.

Sterkari framendi

Stýrisrörið er breiðara að neðan en að ofan. Það gerir framendann sterkari og stífari án þess að þyngja hjólið, og gefur þér úr fleiri dempurum að velja ef þú vilt uppfæra seinna.

Kaplar inni í stellinu

Kaplarnir eru þræddir inn í stellið fyrir aftan stýrisrörið, þar sem þeir nuddast hvorki né skrölta.

Skemmtilegt á slóðunum

Onna hagar sér vel á slóðunum og er stöðugt og fyrirsjáanlegt. Það þýðir einfaldlega meiri gleði í hverjum túr, sama hvaða stærð þú þarft.

Stíft og
þægilegt

Stellið er nógu stíft til að vera hratt og svara vel, og nógu mjúkt til að vera þægilegt og gefa þér góða stjórn.

Vandað
álstell

Rörin í álstellinu eru mótuð hvert fyrir sig. Þannig getur Orbea fínstillt hvernig hjólið hagar sér.

Rétt
stærð

Góður túr byrjar á hjóli sem passar. Onna kemur með 27,5" gjörðum í stærðum XS og S og með 29" gjörðum í stærðum S til XL.

Vex með þér

Onna er tilbúið fyrir það sem þú vilt bæta við seinna. Á stellinu eru festingar fyrir bögglabera og standara, og það tekur dropper sætispípu.

Pláss fyrir
bögglabera

Á afturenda stellsins eru traustar festingar fyrir flestar gerðir bögglabera, svo að þú getir tekið farangur með.

Festing fyrir
standara

Á afturþríhyrningnum vinstra megin er innbyggð festing fyrir standara.

Klárt fyrir
dropper

Stellið tekur 27,2 mm dropper sætispípu með kapalinn inni í stellinu, ef þú vilt bæta henni við seinna.

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is