: Wild LT fulldempað rafmagnsfjallahjól

Kraftmikið fulldempað enduro rafmagnsfjallahjól sem kemur með 130 NM DJI Avinox mótor M2S, en hann getur einnig gefið þér superboost 150 NM kraft í 60 sekúndur inn á milli (H20 hjólið kemur með 110 NM kraftmiklum M2 mótor og 125 NM í superboost). Orbea aðskilur sér frá öðrum hjólaframleiðendum með Avinox mótorum að því leyti að þeir eru í nánu samstarfi við Avinox og fengu að útbúa sitt eigið RS (Rider Synergy) firmware fyrir mótorinn, sem skilar afli mun 3x hraðar þegar mótorinn greinir að þú ert að setja meira afl í pedalana, með það í huga að skila aflinu þegar þú þarft mest á því að halda. Hjólið er fáanlegt með 800WH eða 600WH batteríi eftir því hvort þú vilt léttara hjól eða meiri drægni. Hjólið er byggt á vel heppnaðri hönnun á Rallon keppnishjólinu sem hefur verið að gera góða hluti í enduro og downhill keppnum, það er hannað til að hafa lágan þyngdarpunkt, lága klofhæð, djúpa dropper sætispípu, með það í huga að auka stöðugleika, og gera það auðveldara að stýra hjólinu sem skilar sér í hraðara hjóli. Wild LT er fáanlegt í flottum carbon og ál útgáfum, og kemur með 170 mm fjöðrun að framan og að aftan, en hægt er að uppfæra í 180 mm fjöðrun að framan á sumum týpum. Hægt er að velja á milli 29" gjarðir að framan og að aftan eða mullet útgáfu með 29" að framan og 27.5" að aftan. Sumar týpur eru fáanlegar með rafdropper sætispípu, rafskiptum, og rafdempurum, allt tengt við sama batteríið og stýrt úr flottri fjarstýringu í stýrinu. Þetta er draumahjól fyrir þau sem vilja kraftmikið rafmagnsfjallahjól og elska að bruna niður fjallshlíðir.

Til að sjá nánari upplýsingar um hjólið Skoða nánar

Létt en kraftmikið

Lágt, stöðugt og hratt. Ef Wild LT lítur út eins og það var að koma úr keppnisbraut, þá er það tilfellið.

RS firmware: Meiri stjórn. Meira grip. Meiri færni.

Orbea bjó til sitt eigið RS (Rider Synergy) firmware í nánu samstarfi við DJI Avinox sem að skilar afli með það að leiðarljósi að hámarka grip og að skila afli hraðar þegar stigið er á pedalana.

RS kerfið: stýrðu öllu úr stýrinu

Meiri stjórn, með minni áreynslu. Stýrðu mótor og rafmagns dropper sætispípu úr flottri minimalískri fjarstýringu. (Í boði á RS merktum hjólum.)

Tilbúið í fjörið

Njóttu hjólatúranna aftur og aftur, á hljóðlátu og áreiðanlegu hjóli, útbúið góðum íhlutum fyrir enduro hjólreiðar sem að endast.

Einstaklega vel hannað hjól

Lár þyngdarpunktur, lág klofhæð, stellið stíft á réttu stöðunum, og djúp dropper sætispípa gerir þetta hjól einstaklega stöðugt og auðvelt í notkun í krefjandi aðstæðum.

Hannað til að fara hratt

Hönnun hjólsins byggir á Rallon downhill og enduro keppnishjólinu, sem hefur reynst einstaklega vel í keppnum. Lærdómar af því hjóli hafa skilað sér í þessa nýjustu kynslóð af Wild hjólinu.

OMR carbon stell

OMR carbon stell er fyrir þau sem vilja léttara hjól og möguleika á því að sérhanna liti á hjólinu.

Ál stell

Ál stellið er fyrir þau sem vilja hjól á betra verði og vilja vandað ál stell þar sem að suðan er slípuð niður til að gefa hjólinu carbon útlit

Avinox M2S RS mótor"

Öll hjólin (nema H20) koma með 130 NM kraftmiklum Avinox M2S RS mótor, 150 NM þegar superboost er notað sem er frábært í bröttum krefjandi köflum. RS í nafninu stendur fyrir Rider Synergy sem er sérstakur hugbúnaður sem að Orbea bjó til fyrir þennan mótor í nánu samstarfi við Avinox. RS hugbúnaðurinn skilar afli 3x hraðar en hefðbundni Avinox mótorinn þegar hann greinir að það er verið að setja afl í pedalana og stýrir aflinu með það að leiðarljósi að hámarka grip.

Batterí

Veldu á milli þess að hafa 800 WH batterí fyrir meiri drægni eða 600 WH batterí fyrir léttara hjól.

RS kerfið

RS merktu Wild LT týpurnar tengja saman batterí, mótor, fjöðrun, dropper sætispípu, rafskipti, allt í gegnum eina fjarstýringu sem lætur alla þessa íhluti vinna saman til að skila snjöllu einstöku hjóli sem hjálpar þér að tækla allra erfiðustu leiðirnar.

MyO

Ákveðnar týpur af carbon hjólunum bjóða þér upp á að sérhanna litina á hjólinu þér að kostnaðarlausu!

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is