: Rallon downhill fulldempað fjallahjól

Rallon DH er sturlað fulldempað downhill keppnishjól, það kemur með 200 mm fjöðrun að framan og að aftan, og er hannað fyrir virkilega brattar og krefjandi aðstæður á keppnishraða. Það er hannað til að vera með lágan þyngdarpunkt sem gefur því mikinn stöðugleika og hjólara mikla stjórn. Auðvelt er breyta allskonar stillingum á hjólinu fyrir mismunandi aðstæður eða brautir. Hjólið kemur í mullet útgáfu með 29" framgjörð og 27,5" afturgjörð fyrir enn meiri stöðugleika. Það kemur einnig með innbyggðu verkfæri, geymsluhólfi í stellinu og kemur filmað til að hlífa stellinu.

Framdempari

200 mm

Afturdempari

200 mm

Gjarðir

29" / 27,5"

Stell

Carbon

Hratt niður brekkurnar

Fjöðrun sem er fínstillt fyrir fjallabrun og skilar þér niður brautina á fullri ferð.

Stillanlegt fyrir hverja braut

Þú stillir hjólið eftir brautinni og þínum stíl, með fleiri stillingum en nokkru sinni fyrr.

Byggt til að endast

Sterkbyggt hjól með íhlutum sem þola allt álagið sem fylgir fjallabruni.

Hannað fyrir heimsbikarinn

Rallon DH var þróað á erfiðustu brautunum í heimsbikarnum í fjallabruni og er nákvæmlega sama hjól og keppnisliðið notar. Fjöðrun í hæsta gæðaflokki og stöðugt stell í góðu jafnvægi gera það tilbúið í hvaða áskorun sem er.

200 mm fjöðrun

Rallon DH kemur með 200 mm fjöðrun að framan og aftan, tilbúið í stóru stökkin og hraðann á bröttustu brautunum. Fjöðrunin er næm á litlar ójöfnur, styður vel við þig í miðju slagi og botnar síður í stórum höggum.

Lágur þyngdarpunktur

Með GravityLink situr afturdemparinn eins neðarlega og hægt er, sem lækkar bæði stellið og þyngdarpunktinn. Hjólið verður stöðugra á bröttum og grófum köflum og lipurra í beygjum og í loftinu.

Geometría fyrir fjallabrun

Geometrían hefur verið þróuð og prófuð í fjallabrunsbrautum árum saman. Hjólið kemur í mullet útgáfu með 29" framgjörð og 27,5" afturgjörð, tilbúið í bröttustu brautirnar.

Fínstillt carbon stell

Stífleikanum í carbon stellinu er stýrt af nákvæmni, með aukinn stífleika við sveifarleguna og gott jafnvægi á milli fram- og afturhluta. Það skilar þér öryggi og gripi í grófum hliðarhalla.

Lóð fyrir enn meiri stöðugleika

Með hjólinu fylgja þrjú lóð (395 g, 95 g og 93 g) sem eru skrúfuð beint á GravityLink við sveifarleguna, bragð sem margir viðgerðarmenn í heimsbikarnum nota. Meiri þyngd neðst gefur mýkra og stöðugra hjól, og þú tekur lóðin af þegar brautin kallar á hröðun og snögg viðbrögð.

Stillanlegt fyrir hverja braut

Það er mikill munur á fjallabrunskeppni, hring í hjólagarðinum og rólegum degi með vinunum. Það er fljótlegt og einfalt að stilla Rallon DH eftir brautinni og þínum stíl, jafnvel rétt fyrir næstu ferð niður.

Stýrishorn ±0,75°

Með stýrislegunni breytir þú stýrishorninu um ±0,75°, til dæmis til að fá slakara horn fyrir brattari brautir.

Flip chip

Með flip chip velur þú hversu progressive fjöðrunin er, 25% eða 30%. 25% er línulegri stilling fyrir hraðar brautir, en 30% hentar grófum brautum með stærri droppum.

442 eða 450 mm afturþríhyrningur

Hægt er að velja á milli 442 mm og 450 mm afturþríhyrnings. Sá lengri gefur hámarks stöðugleika á miklum hraða, en sá styttri gefur lipurra hjól.

Byggt til að endast

Rallon DH skilar þér alla leið niður, með hljóðlátu og sterkbyggðu stelli og íhlutum sem eru valdir til að þola álagið í fjallabruni.

OQUO MC32 TEAM gjarðir

Sterkar og áreiðanlegar álgjarðir, þær sömu og keppnisliðið treystir á í heimsbikarnum.

Maxxis DH dekk

Maxxis Assegai að framan og Minion DHR að aftan, sterkustu dekkin fyrir grófustu brautirnar.

FOX 40 framdempari

Krefjandi fjallabrunsbrautir kalla á stífari og sterkari framdempara. Rallon DH kemur með FOX 40 Factory.

Innbyggð verkfæri

Í stellinu er fjölverkfæri með 2, 3, 4 og 5 mm sexköntum sem segull heldur á sínum stað, og í afturöxlinum er 6 mm sexkantur.

LOCKR geymsluhólf

Geymsluhólf í stellinu þar sem þú geymir verkfæri, nesti eða jafnvel jakka.

Hljóðlátt og vel varið

Kaplarnir liggja inni í stellinu og mjúk gúmmíhlíf á afturþríhyrningnum dempar keðjuslátt, svo að ekkert skröltir. Stellið kemur líka filmað til að hlífa lakkinu.

Sigrar í heimsbikarnum

Þetta er sama hjól og Orbea FMD Racing keppir á í heimsbikarnum, þar sem það fór þrisvar á efsta þrep verðlaunapallsins á sínu fyrsta tímabili.

MyO

Rallon DH er fáanlegt í MyO (My Orbea) útgáfu. Hannaðu draumahjólið þitt í þínum litum þér að kostnaðarlausu!

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is