: Rise LT fulldempað rafmagnsfjallahjól forpöntun

Framdempari

160 mm

Afturdempari

150 mm

Þyngd frá

18 kg

Mótor

100 Nm

Létt og lipurt

Rise LT vegur frá aðeins 18 kg, sem er einstaklega létt fyrir rafmagnsfjallahjól. Fyrir vikið hagar það sér líkt og hefðbundið fjallahjól, lipurt og leikandi, sem gerir það einstaklega skemmtilegt á fjallahjólaslóðunum!

Fjöðrun fyrir krefjandi slóða

Allar týpur af Rise LT koma með 160 mm FOX 36 framdempara og 150 mm fjöðrun að aftan. Meiri fjöðrun og ákveðnari geometría gefa þér aukið öryggi á grófum og bröttum slóðum.

Nýr Shimano EP810 RS mótor

Þetta er kraftmesta Rise hjólið hingað til. Nýjasti mótorinn frá Shimano skilar allt að 100 Nm og 600 W en vegur aðeins 2,3 kg. Hann er hljóðlátari og næmari en áður og er með nóg af afli til að bruna upp erfiðustu klifrin!

Meiri drægni eða meira afl

Þú skiptir á milli tveggja stillinga í fjarstýringunni. RS stillingin (allt að 85 Nm og 400 W) gefur náttúrulega tilfinningu og hámarkar drægni, á meðan RS+ gefur þér fullt afl, 100 Nm og 600 W. Með Superboost takkanum færðu svo fullt afl tímabundið í bröttustu brekkunum.

420Wh Batterí

Þyngd

1,9 kg

Áætluð hækkun

1500 - 1700 m

Léttasti kosturinn fyrir þá sem vilja sem lipurast hjól

630Wh Batterí

Þyngd

2,9 kg

Áætluð hækkun

2000 - 2400 m

Fyrir lengri daga og meira klifur

210Wh aukabatterí

Þyngd

1 kg

Áætluð auka hækkun

800 m

Utanáliggjandi batterí sem er smellt á hjólið í stað brúsahaldara

RS Control System

Í RS týpunum af Rise LT eru mótorinn, fjarstýringin og rafdropper sætispípan eitt samtengt kerfi sem Orbea hannaði frá grunni. Allt kerfið notar aðal batteríið svo að þú þurfir ekki að hlaða marga mismunandi íhluti, og öllu er stýrt með einni fjarstýringu.

Ein fjarstýring fyrir allt

Lítil og nett fjarstýring stýrir bæði aðstoðinni frá mótornum og dropper sætispípunni, án þess að þú þurfir að færa hendurnar á stýrinu. LED ljós sýna hvaða aðstoð er stillt á og stöðuna á batteríinu.

Bara eitt batterí að hlaða

Allir íhlutir kerfisins tengjast aðal batteríinu, svo það eru engin auka batterí sem þarf að muna eftir að hlaða. Stýrið verður líka einstaklega stílhreint og um 350 g léttara en með hefðbundnum skjá og dropper handfangi.

MC10-RS rafdropper sætispípa

Ný rafdropper sætispípa frá Orbea sem vegur aðeins 548 gr með 240 mm færslu. Hún notar aðal batteríið og skynjari í henni veit alltaf nákvæmlega í hvaða hæð hnakkurinn er, sem býður upp á nýja og snjalla eiginleika.

Hnakkurinn niður að hluta

Smelltu tvisvar á takkann og hnakkurinn lækkar um 20%, sem er frábært á tæknilegum köflum. Hægt er að stilla hversu mikið hann lækkar í RS appinu.

Niður þegar þér hentar

Smelltu einu sinni á takkann og sætispípan er tilbúin, hnakkurinn fer svo niður þegar þér hentar. Þannig heldur þú báðum höndum á stýrinu þegar mest á reynir.

Djúp sætispípa

Stellið er hannað þannig að 210 mm dropper sætispípa kemst alla leið niður, og allt að 240 mm í stærðum L og XL, svo að hnakkurinn verði ekki fyrir þér á leiðinni niður!

Breyttu stellinu

Með QuickFlip við afturdemparann breytir þú geometríunni á hjólinu á aðeins nokkrum sekúndum áður en þú skellir þér niður fjallið.

Mullet eða 29"

Veldu 29" dekk að framan og aftan fyrir hámarks hraða og grip, eða 27,5" að aftan fyrir leikandi og lipurt hjól. Sér linkur fyrir hvora dekkjastærð sér til þess að geometrían haldist óbreytt.

MyO

Rise LT er fáanlegt í MyO (My Orbea) útgáfu. Hannaðu draumahjólið þitt í þínum litum þér að kostnaðarlausu!

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is