: Alma fjallahjól

Létt hardtail Cross-country (XC) fjallahjól sem kemur með 110 mm fjöðrun að framan. Hjólið kemur með demparalæsingu í stýri og er fáanlegt með dropper sætispípu. Fullkomið hjól fyrir þau sem vilja fara hratt og þurfa ekki mikla fjöðrun.

Innbyggð fjöðrun

Stellið er hannað til að fjaðra smá að aftan, nógu mikið til að draga úr titringi sem að þreytir þig, en nógu lítið til að draga ekki úr stífleikanum og hröðuninni sem að einkennir góð hardtail hjól.

110 mm framdempari

Alma hjólin koma með 110 mm dempara að framan sem er frábær millivegur á milli þess að vera með góða fjöðrun en samt viðhalda lágri þyngd. Hægt er að læsa demparanum með demparalæsingu í stýrinu.

2.4" Breið dekk

Hjólið tekur allt að 2.4" breið dekk sem gefa þér meira grip og meiri þægindi.

Snyrtilegt stýri

Það er mikið lagt upp úr því að gera hjólið snyrtilegt og stílhreint. Allir kaplar eru þræddir meðfram og undir stýri. Stýrið kemur með innbyggðum stýrisenda, garmin festingu og er hannað til að vera létt og stíft svo að sem mest af aflinu frá þér skili sér í meiri hröðun.

Létt dropper sætispípa

Hjólið er fáanlegt með léttri dropper sætispípu sem fer 100 mm niður.

Sérhannaðu litina

Hægt er að sérhanna litina á carbon týpunum af Alma hjólinu í þínum uppáhalds litum þér að kostnaðarlausu.

Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Sendu okkur þá línu og við hjálpum þér að finna draumahjólið!

ofsi@ofsi.is