{"product_id":"rise-sl-h30-2026-small","title":"RISE SL H30 2026 - Small","description":"Orbea Rise SL er fulldempað trail rafmagnsfjallahjól sem var hannað til að vera létt, lipurt, kraftmikið og með góðri batterí endingu. Hjólið er fáanlegt í bæði carbon útgáfu sem býður upp á að sérhanna alla liti, en einnig í vandaðri ál útgáfu þar sem að suðan er slípuð niður til að láta hjólið líta sem allra best út. Hjólið kemur með kraftmiklum 85NM Shimano mótor og er fáanlegt með 420 WH (1,95 kg) innbyggðu batteríi fyrir þau sem vilja léttara hjól eða 630 WH (2,9 kg) batteríi fyrir þau sem vilja drífa lengra, þar að auki er hægt að kaupa auka utanáliggjandi batterí 210 WH (1,05 kg) fyrir allra lengstu ævintýrin. Þrátt fyrir þessa stærð af batteríum þá er hjólið eitt allra léttasta í flokki léttra rafmagnsfjallahjóla, og er rúmlega 16 kg í allra léttustu útfærslu (Rise SL M-LTD). Rise SL kemur með 65.5º head angle og með 140 mm fjöðrun að framan og að aftan, sem skilar sér í lipru hjóli sem er fullkomið fyrir slóða, þar að auki er stellið hannað til að taka við stórum dropper sætispípum allt að 230 mm löngum til að tryggja að sætið er ekki að þvælast fyrir þegar farið er niður erfiðar brekkur. Einnig eru allir kaplar þræddir snyrtilega meðfram stýri inn í stellið, hjólið kemur með innbyggðu verkfæri og filmum til að verja stellið á veikustu stöðunum svo eitthvað sé nefnt. Þetta er draumahjól fyrir þau sem vilja létt og krafmikið trail rafmagnsfjallahjól í langa hjólatúra sem hegðar sér eins og venjulegt fjallahjól.\n  \u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\n                    Til að sjá nánari upplýsingar um hjólið \n                    \u003ca href=\"https:\/\/www.orbea.com\/is-en\/ebikes\/mountain\/rise\/\" target=\"_blank\"\u003eSkoða nánar\u003c\/a\u003e\n               ","brand":"Orbea","offers":[{"title":"Bumblebee Yellow-Black (Matt) \/ S","offer_id":53466952073534,"sku":null,"price":769900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/2582\/7472\/files\/T319TTCC-SS-SIDE2-RISE_SL_H30_SRD_over_9d6fb363-b52f-42e7-9e32-8f86016a5c0c.jpg?v=1759358134","url":"https:\/\/ofsi.is\/products\/rise-sl-h30-2026-small","provider":"Ofsi hjól netverslun","version":"1.0","type":"link"}